Guðný Anna Arnþórsdóttir
Leitarbox

Dagsetning
9. febrúar 2010
19.10.2006 22:53:08 / GudnyAnna

Færsla til prufu

Hef fært bloggið á nýja slóð

www.123.is/gudnyanna


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 01:20:57 / GudnyAnna

Gústi og Magga XI

Það hafði alltaf verið illgjarnt fólk í ættinni. Góðvild og mannkærleikur þóttu fádæma merki um veiklyndi, húmorsleysi, kjarkbrest, uppburðarleysi og almennan eymingjaskap. Best var að búa yfir þeim stórfenglega persónuleika að geta dregið einhvern sundur og saman í háði og helst allt hans fólk, fatlað og ófatlað, bent á mistök hans, heimskupör og illt innræti. Gott var að finna vafasöm tengsl við vafasamt fólk – í augum laganna.  Þvi margur hyggur mig sig. “Ég get ekki farið í erfidrykkjuna og hlustað á allar kjaftasögur um framhjáland líksins,” sagði Magga og þurrkaði sér um munninn á sólblómaservíettunni. Gústi: “Hvað er málið”? Þetta var uppáhaldssetningin hans þegar hún fór að færa málefni ættarinnar í tal. “Geturðu ekki séð að þetta er bara önnur og skemmilegri hlið á málunum en þú kemur auga á, alltaf með væmnina í pokahorninu? Og Magga, lík halda ekki fram hjá. “  Magga;”Jú, meðan líf var í því og það var ekki formlegt lík. Svona forstig. Einsog við erum öll. “ “Það er eins gott að liðið heyrir ekki í þér, þau myndu halda að þú værir orðin spinnegal í 2.veldi.”  “Þau vita ekkert um veldi og góðu haltu þér á mottunni. Ég fer ekki fet”.  “Þú kemur náttúrulega með mér sem konan mín, maður fer ekki einn í jarðarför hjá stórfrænda sínum og hvalveiðimanni.”

“Ég ætla í bæinn með Lóu. Við ætlum fyrst í Latte á Tíu dropum og svo í Svettið hjá hommunum í Elliðaárdalnum. ”  “Ertu aftur orðin á valdi kvíðaröskunarangistar?”Reyndu endilega að vera fyndinn, það fer þér svo vel – NOT. – Ég bið að heilsa kaldhæðnu tilfinningagrýlukertunum með besserwisserstælana og engocentrismann sinn. Þau munu ekki taka eftir því að mig vantar. “  "Víst, þetta lítur illa út fyrir mig". "Það gleður mig ósegjanlega, það styrkir mig enn frekar í að fara ekki." "Er það nú ást!" "Hvað þykist þú vita um ást, tilfinningalaus og impotent, skotinn í vinkonu minni og með ofvöxt í hægra brjósti? Þú mátt sannarlega þakka fyrir að ég fer ekki að kommentera á allt þetta við ættina." "Kannski þú komir ekkert bara."


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 22:33:12 / GudnyAnna

Ort í sprungu

Sál mín er sokkin í sæ.

Ég fann það oní bæ.

Sama á hvaða mið ég ræ.

Sjólegin sála, hæ gæ.

 

 

Framan í mér er fýla.

Langar þig mig að kýla?

Sama hvað sagt er um fíla.

Fýlukennd fés milli bíla.

 

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 21:55:52 / GudnyAnna

Brothætt sjálfsmynd

Það var aðkenning að kvöldi og dagurinn var alveg að verða búinn. Töskurnar stelpnanna sveifluðust til og frá. Þær pískruðu og það ískraði í þeim eins og gamla mjólkurkælinum í bensínsjoppunni heima. Lífið var ungt og það var gaman að leika. Ekki komið óbragð af kleinunum og sólarlagið þreytt.  Ör blóðmyndun og synapsarnir í heilanum á fullu í nýliðun. Svo mættu þær Góa grallara. Hann sagði: “Mikið rosalega hafið þið feita rassa báðar tvær.” Ískrið hætti.  Það hægði á blóðmynduninni og akút lömun varð í hluta synapsanna. Svona þarf nú lítið til.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 22:30:35 / GudnyAnna

Aldrei aftur, aldrei aftur

Þetta er til marks um hið kolómögulega blog.central drasl, nú fer ég að blogga á 123.is eins og einkaskáldkonan mín segir að ég eigi að gera..  Myndirnar eru semsé gasalega fínar á tölvunni minni, en strax í næsta herbergi eru engar myndir og í Reynihlíðinni t.d., engar, bara rauðir krossar.  Megið þið skammast ykkar blogcentralar og globfentralar. Sveiattan


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 22:00:41 / GudnyAnna

Freydís

 Nú er móðir Gauta og Freydísar að tapa sér í myndainnsetningu

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 21:48:53 / GudnyAnna

Gauti

    Einkasonurinn

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 21:39:47 / GudnyAnna

Gat að líta hryggðarmynd?

 Ég held ég sé farin að geta sett inn myndir, sveimérþá.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 22:53:11 / GudnyAnna

Úrslit í skoðanakönnun


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 22:39:24 / GudnyAnna

Djömm og dösunarheit, sængurföt og Suðursveit

Þetta er nú búin að vera meiri helgin.

Föstudagskvöld í gegnarlausri stemmningu í Arnarnesinu, mikið sungið, mikið borðað, mikið spjallað og jafnvel dansað. Svetlana er enn á landinu og lék undir við söng Ólu Siggu. Fór heim með Hiddu eftir boðið, gat bara ekki slitið mig frá henni.

Á laugardag var þessi líka flotta sviða – og sláturveisla í gamla miðbænum hjá góðu fólki.  Slátur, lifrarpylsa, rófustappa og svipfríð svið. Þau voru svo andlitsfríð að það var smá átak að leggja þau sér til munns. En hafðist þó og mikið var braggggðið gott.

Gauti er enn í Madrid og Freydís er í flugi.

Í dag hefur gengið á með skrifum, þvottum, rúmfataskiptingum, tölvupóstsamskiptum, undirbúningi erindis, búðarferðum og smálestri. Of litlum lestri þó.

Ætla að bæta úr því núna og smella mér inná milli hreinna og ilmandi  sængurfata með nýju bókina, sem er “Stutt ágrip af sögu traktorsins á úkraínsku” eftir Marina Lewycka. Maður er nú orðinn dáldið meinstrím í lestrinum.

Ég er samt með “Í Suðursveit” í inspírasjónstilgangi á náttborðinu og gríp alltaf í hana þegar mér verður þungt í þanka. Og svo bregst Laxness mér aldrei í þeirri deildinni.

En mikið rignir.


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 21:47:51 / GudnyAnna

Músíkk, ferðalög og fleira

Upplifun: Það er eitthvað við það þegar symfóniuhljómsveitin hefur endað tóninn.  Eitthvað mystiskt, klassískt, ógnvekjandi en unaðslegt að sjá svartklætt fólk með fiðlu undir vanga eða selló milli hnjánna.  Allur þessi agaði kraftur þarna fyrir innan. Ólgandi tilfinningar sem skila sér í limbíska kerfið og stímúleringu á tárakirtlum á manni. Allt fyrir innan þetta járntjald. Hljómmikla járntjald.

Fréttir af familíunni og upplifun: Mikið assgoti söng hún Óla Sigga vel í Listasafni Íslands í gær. Svetlana Gorzhevskaya spilaði undir. Þetta var söngsigur hjá Ólu Siggu. Pushaj pagnibnu ya, arían úr óperunni Évgeni Onégin eftir Tchaikovsky var ómótstæðilega frábær. Við Freydís klöppuðum svo ógurlega, að okkur sveið í lófana. Hittum alla familíuna meira og minna, ekki smá fjör.

Ætlaði að vera við í Ráðhúsinu í dag, þegar Óla Sigga tróð upp með finnska tangó-harmoníkku-bandinu sínu, en var of þreytt til að meika umferðaröngþveitið í kringum Ráðhúsið í síðdegisrigningunni.

Gauti er á leið til Madrídar. Og nýkominn frá USA. Stuðið á ungum mönnum.

Freydís hjúkrunarfræðinemi er byrjuð að fljúga hjá JetX.  Flaug til Búlgaríu í dag og kom heim með amerískar Brownies, sem fengu okkur Gauta til að standa á öndunum. Gæsunum.

Gauti og Sólrún eru á leið til Kína. Ég á leið til Rómar (í nóvember). Ættarmótið er svo 19.nóvember og þá kemur Hlíf frá Danmörku. Er þetta ekki ágætt í bili?

Freydís & Jökull (ehf) hafa fest kaup á íbúð í Norðurmýrinni. Fegin að þau gengu frá þessu áður en þau sáu “Mýrina”.

Fleiri fréttir: Ráðstefnan var hin ágætasta. Það kom hreyfimyndarklipp af frú Jensen á www.mbl.is. Það sem hún er orðin fyirgengileg. Það var alltaf sagt um fólk á Eskifirði, þegar það var alveg að hrökkva uppaf standinum og það sást á því. Eða þannig skildi ég það allavega.

Náttúran í steinsteypunni:  Margaríturnar eru bráðum komnar til guðs, en Kálið blómstrar enn, gulum, safaríkum blómum.

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 23:42:57 / GudnyAnna

Sumir

Sumir fara og koma ekki aftur

Sumir koma og fara aldrei aftur

Sumir eru bara til í þykjustunni

Sumir eru til staðar

Sumir gleðja

Sumir brjóta

Sumir eru alltaf til staðar

Sumir eru bara farnir

Sumir eru þar

Sumir eru bara þar


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 23:34:26 / GudnyAnna

Ef þið viljið gráta, hlæja, gleðjast, vera til....

   Nina Simone: Ne me quitte pas, - I put a  spell on you, -  Pirate Jenny, -  Don´t let me be misunderstood, -  Four women


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 23:24:36 / GudnyAnna

Heima um haust

 

Ég sit við gluggann og það er vor

Fuglarnir eru ungir og syngja

Ég sit við gluggann og það er suma

Sumarið er svo grimmt, allir syngj

Ég sit við gluggann og það er haust

Laufin falla eins og ég

Ég sit við gluggann og það er vetur

Ég er heima



 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 40
Leitarbox

Klukkan
RSS tengill
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti